fimmtudagur, 21. ágúst 2008
Breytingar frá því í fyrra
Það var einróma álit hópsins í fyrra að verklegi þátturinn væri skemmtilegastur og lærdómsríkastur, og mætti vera veigameiri. Í stað tveggja stuttmyndaverkefna eru þau nú fjögur:
- stuttmyndamaraþon
- stutt heimildarmynd
- auglýsing
- lokaverkefni
2. Lokaprófið gildir minna
Í fyrra gilti tveggja tíma lokapróf 100% af prófeinkunn. Vægi lokaprófsins er nú 50%, og bloggið gildir nú 50% af prófseinkunninni.
3. Fyrirgjöfin fyrir bloggið hvetur til þess að unnið sé jafnt og þétt
Í fyrra var gefin ein einkunn fyrir hvora önn. Þá voru ansi margir sem freistuðust til þess að fresta vinnu sinni og taka törn í lok annar. Nú verður gefin einkunn fyrir hvern mánuð og ein einkunn í lok annar. September, október og nóvember gilda þá 16,7% hvor, og einkunn fyrir alla önnina 50%, þ.a. ef einhver freistast til þess að skrifa allar sínar færslur í desember, þá getur hann ekki fengið hærra en 5 fyrir önnina.
4. Nú verða keyptar bækur
Í fyrra var mikið notast við bókina Film Directing Fundamentals og nokkrar aðrar, en nemendur voru ekki látnir kaupa neina bók, heldur var efnið gert aðgengilegt á netinu. Þá fannst mönnum þeir ekki verða að lesa það. Að fenginni reynslu eigið þið nú að kaupa FDF og ljósritað hefti (bæði koma eftir 2-3 vikur).
5. Fleiri hátíðarferðir
Í fyrra fóru nemendur á a.m.k. tvær sýningar á RIFF. Nú farið þið á tvær sýningar á Reykjavík Shorts & Docs, auk þess sem þið farið á tvær sýningar og einn viðburð á RIFF. Við sjáum svo til með hátíðir á vorönn, þar er ekki úr mörgu að moða, en það getur hugsast að við förum á frönsku kvikmyndahátíðina.
Ég er örugglega að gleyma einhverju...
miðvikudagur, 20. ágúst 2008
Dagskrá viku 1
8.10-8.50: Kynning á námskeiðinu og spjall.
8.55-9.35: Horfum á nokkrar stuttmyndir til þess að koma okkur í gírinn.
Seinni tímarnir verða ekki kenndir í dag.
Mánudagur 25. ágúst
8.10-9.35: Kynning á myndavélinni okkar.
Miðvikudagur 27. ágúst
8.55-9.35: Fyrsta verkefnið, Stuttmyndamaraþonið, er kynnt og lagt fyrir.
Bíóferð
Í þessari viku eigið þið að fara á a.m.k. tvær sýningar á Reykjavík Shorts & Docs og skrifa bloggfærslu um hvora ferð. Hér er dagskráin:
Ég ætla að leyfa ykkur sjálfum að velja sýningar að fara á, en mæli þó sérstaklega með að þið farið á "Íslenskar heimildarmyndir" og eina stuttmyndasýningu.Verð á einstakar sýningar er 600kr. Þið getið líka fengið passa sem gildir á allar myndirnar á sérstöku tilboðsverði (2500kr. held ég).
mánudagur, 21. apríl 2008
Umsögn um síðustu tvo fyrirlestrana
Alveg hreint ágætur fyrirlestur.
Ágætur inngangur.
Öll klippin voru góð og vel valin nema Easy Rider (það skiptir kannski ekki öllu með tónlistina en ég fékk þá tilfinningu að það væri allt sundurklippt, þó ég sé ekki 100% viss).
Fín pæling um áhrif kvikmynda.
Talsvert of langur (26 mínútur)
Ágætisfyrirlestur.
Vel valin klipp.
Fín greining á myndum hans.
Fín umfjöllun um myndirnar.
laugardagur, 19. apríl 2008
Prófið langa
Að öðru leyti vona ég að prófið hafi lagst vel í menn, og óska ég ykkur alls hins besta í prófunum sem eftir eru.
Ég veit ekki fyrir víst hvenær DVD-diskurinn verður til, líklegast ekki fyrr en eftir svona tvær vikur í fyrsta lagi (ég er alveg að drukkna í vinnu akkúrat núna). Þegar að því kemur, þá tilkynni ég það hér á síðunni, og að öllum líkindum verður það afgreitt þannig að þið getið sótt þá upp á skrifstofu.
fimmtudagur, 17. apríl 2008
Maður verður að játa mistök sín
Allar myndirnar voru góðar - það er engin skömm að fá 8,5 fyrir stuttmynd. Að því sögðu, þá er ljóst að fyrirgjöfin hjá mér var hálfmisheppnuð, því ég tók ekki nægilegt tillit til sögunnar og handritavinnunnar (þar finnst mér reyndar Endurfundir vera meiri óréttlæti beitt en Syndir feðranna).
Eftir á að hyggja, sé ég að það voru e.t.v. mistök að gera þær handritskröfur sem ég gerði, þar sem einhverjir hópar festu sig of mikið í handritinu á kostnað flæðis og sköpunargleði. Þá hefði ég líka átt að koma með athugasemdir við handritin sem ég fékk.
Ég vil ekki lækka neinar myndir, enda myndi það senda leiðindaskilaboð. Einn hópur fylgdi ekki sínu handriti og hefði kannski átt að fá refsistig fyrir það. Á móti kemur bæði að handritið sem þeir skrifuðu var mjög gott, og að ákvörðunin sem þeir tóku var sú eina rétta, því það hefði að öllum líkindum reynst þeim um megn að kvikmynda handritið sitt. Mér finnst ekki ástæða til þess að draga þá niður fyrir að taka rétta ákvörðun.
En að endurskoðuðum einkunnum:
Syndir feðranna
Þessi mynd fannst mér líða mest fyrir fastheldni sína við handritið. Ef ég hefði beðið um handrit án díalógs hefði það kannski ekki gerst, hver veit?
Höfum það samt alveg á hreinu að þetta er ekki slæm mynd. Það er margt mjög gott við hana. Myndatakan og klippingin í bílasenunni er til fyrirmyndar. Lokasenan var fín. Senan á lögfræðistofunni var ansi góð. Senan með Breka var líka mjög fín. Sagan í heildina var góð og vel uppbyggð. Klippingin er oft mjög fín, og t.d. er uppbygging upphafssenunnar, með klippinu yfir í nærmyndina á hárréttum tíma, mjög flott.
Sem sagt, ég lúffa með hluta af upphaflegri gagnrýni minni á bílasenuna. Það er rétt að það að klippa senuna eins og samtal gefur henni skemmtilega firrtan blæ, þ.a. reaction skotin eiga vissulega rétt á sér. Ég tek gagnrýnina á þau tilbaka. Ég get því miður ekki með góðri samvisku gert hið sama með hljóðvinnsluna. Myndin verður að geta staðið ein og sér, án þess að fylgi með langar útskýringar á því af hverju þetta eða hitt er rosalega sniðugt. Eftir allar þessar útskýringar skil ég hvað þið eruð að reyna að gera, og mér finnst það ágæt hugmynd. En eins og senan er kemst þetta ekki til skila. Annað hvort hefði mátt hafa eina langa vandræðalega þögn með háu umhverfishljóði í lok einræðunnar, kannski með hægu zoomi á líkpokann eða eitthvað svoleiðis - ég er sannfærður um að það hefði virkað betur. Ellegar hefðu þagnirnar þurft að vera lengri til þess að þessi hugmynd ykkar kæmist til skila - ég er ekki viss um að það hefði endilega verið gott því það hefði getað gert senuna of hæga, en ef við eigum að taka þessu sem symbólskri bið Guðmundar eftir svari frá dauðum föður sínum, þá þurfa pásurnar að vera lengri.
Þrátt fyrir að upphafssenan hafi að mörgu leyti verið góð, finnst mér hún einfaldlega ekki virka í samhengi við myndina. Hún er í lengra lagi miðað við myndina, og gerir ekki mikið til þess að fleyta sögunni áfram. Þið talið um svipaða senu í Reservoir Dogs sem ég man ekki alveg eftir, en ég geri ráð fyrir að sú saga hafi verið sögð af persónu sem kom aftur við sögu í myndinni. Það er ekki raunin með þessa senu. Ef Guðmundur eða Ingólfur (sem báðir gegna raunverulegu hlutverki í sögunni) hefðu sagt söguna, þá hefði hún virkað betur (held ég).
Samtölin eru stundum svolítið þunglamaleg, og stundum er sagan látin þróast of mikið í samtölunum og of lítið myndrænt.
Fín mynd sem hefði átt að fá betri umsögn.
Það sem ég held ég hafi verið að reyna að segja varðandi yfirvaraskeggin var að sá húmor passar ekki endilega saman við restina af húmornum í myndinni, sem er lúmskari og þroskaðri. Þau eru samt fyndin, og alls ekki löstur á myndinni.
Ljóðin eru bráðskemmtileg og montage senan ansi góð. Það hefði kannski verið enn fyndnara ef tónlistin í montage senunni hefði verið einhver eldgömul dægurlög, Raggi Bjarna eða Haukur Morthens eða eitthvað álíka. Þá er ég ekki að segja að tónlistin hafi ekki virkað - hún var fín.
Ég talaði um að hún hefði ekki verið nógu myndræn, en sumt var mjög fínt myndrænt. T.d. var undirbúningur Eyjólfs fyrir kaffiboðið vel gerður. Eins var skotið þar sem Aron hendir stílabókinni ansi skemmtilegt. Það voru eiginlega bara örfáar senur sem voru fábreyttar, t.d. senan með Alexöndru - mér finnst að þar hefði mátt vinna í þrengri skotum.
Ég er alveg á mörkunum að fara með þessa upp í 9,5, en mér finnst ég ekki alveg geta það.
Smá punktur að lokum. Skil á námseinkunnum eru ekki fyrr en á mánudag, þ.a. ekki láta ykkur bregða þótt stigagjöf fyrir bloggið haldi áfram að koma inn yfir helgina.
miðvikudagur, 16. apríl 2008
Dómur fellur
Ég hef kannski vaðið svolítið blint í sjóinn með einkunnirnar fyrir stuttmyndirnar. Að minnsta kosti hef ég fengið nokkuð sannfærandi rökstuðning hjá einhverjum aðilum um að breytinga sé þörf (og myndu þær þá vera til hækkunar). Ég mun leggjast undir feld og gera breytingar á morgun. Þangað til hvet ég menn endilega til þess að láta í sér heyra.
Nú er ég búinn að sjá allar stuttmyndirnar og fimm af sjö fyrirlestrum, og kominn tími á að gefa einkunn fyrir þessi verkefni. Endilega kommentið ef þið viljið verja verk ykkar. Ekkert er greypt í stein.
Stuttmyndir
0:15 (Emil, Björn, Marinó, Andrés og Svavar)
Fyrirlestrar
Emir Kusturica (Árni, Marinó og Björn)
Nánast gallalaus fyrirlestur. Fjallað er um leikstjórann og myndir hans af einlægum áhuga og nokkurri natni. Myndbrotin eru vel valin. Flutningurinn var góður. Ég hef bara ekkert út á þennan fyrirlestur að setja.
Mér fannst vanta svolítið upp á vandvirkni og metnað í þessum. Sumt af því er líkast til sjálfum mér að kenna, enda fékk hópurinn að því er virðist stórgallaðar myndir frá mér, og ég mun reyna að taka tillit til þess í fyrirgjöf. Herzog er kannski efni í fleiri en einn fyrirlestur, en mér fannst vanta svolítið upp á umfjöllunina um hann. Og fyrst verið var að sýna myndbrot úr Grizzly Man, var þá ekki kjörið að sýna eitthvað með honum sjálfum (hann er skemmtilega skrýtinn í henni).
Ágætlega útfærður fyrirlestur. Virkilega vel valin klipp og mjög fín umfjöllun um kvikmyndirnar. Það var lítið um leikstjórann, en það er reyndar ekki hópnum að kenna - það er nánast ekkert á netinu um hann (sem dæmi um það þá birtist færsla á námskeiðssíðunni okkar meðal 10 efstu ef maður slær upp nafninu hans á Google).
Ágætur fyrirlestur en ekki gallalaus. Mér fannst tilfinnanlega vanta glærur þegar farið var í sögu anime - það er erfitt að ná öllum japönsku nöfnunum og þvíumlíku, auk þess sem gaman hefði verið að sjá myndir til þess að átta sig á stílnum (ef einhverjar myndir voru til). Annars var söguhlutinn fínn. Hvað umfjöllun um myndir varðar, þá hefði ég viljað sjá umfjöllun um fleiri leikstjóra en bara Miyazaki.
Hér hefðu líka mátt vera glærur í söguhlutanum. Síðan verð ég að setja smá spurningamerki við rannsóknarvinnuna, þar sem ekki var lögð meiri áhersla á gríðarlega frægð og arfleifð Amitabh Bachchan (gamli karlinn sem dansaði í myndbrotinu), en hann er ein af topp-5 stjörnum Bollywood seinustu 30 árin! Svo var fyrirlesturinn líka í lengra laginu (örugglega um 25 mínútur). Samt sem áður var umfjöllunin um helstu einkenni góð og myndbrotin voru skemmtileg. Svo var myndbandið sem sýnt var í upphafi seinni tímans ansi sniðugt.
Uppbygging prófsins
- 5 stuttar skilgreiningar (10%)
- 2 stuttar efnislegar spurningar (10%)
- 1 spurning sem er nánast gefins (10%)
- Stutt ritgerð þar sem þið greinið uppbyggingu einnar af myndunum sem við horfðum á í vetur (þið getið valið milli nokkurra mynda) (15%)
- Önnur stutt ritgerð (15%)
- Undirbúningur handrits fyrir tökur: Þið fáið senu(r) úr bíómynd sem gerist öll á einum stað og eigið að undirbúa tökuáætlun (uppsetningar, skot, storyboard fyrir nokkur skot, "shooting script", o.s.frv.) (40%)
mánudagur, 14. apríl 2008
Helstu áherslur fyrir próf í kvikmyndagerð
Ég var að enda við að fá minniháttar taugaáfall. Ég mundi ekkert hvenær prófið átti að vera, minnti að það væri einhvern tíman rétt eftir dimission. Síðan gáði ég og fékk kvíðahnút á stærð við verðlauna-vatnsmelónu þegar ég sá að prófið er 19. apríl!!!<-- Einhvern veginn svona leið mér...
Á morgun fáið þið "leslista" fyrir prófið (allt of seint - mea maxima culpa). Hann lítur einhvern veginn svona út og getur ekkert breyst héðan af.
Myndataka
Skot
· Hvernig eru þau yfirleitt notuð?
Sjónlínan
· Hvað er sjónlínan?
· Hvernig getum við notað sjónlínuna til þess að láta áhorfandann samsama sig við persónu, eða fjarlægja sig frá henni?
Uppbygging ramma
· Þriðjungaskiptingin
· Hvernig er ramminn oftast uppbyggður (hvar setjum við augun)?
Þrívítt rými á tvívíðum fleti
· Hvernig sköpum við dýpt? (samsíða línur o.fl.)
Sjónarhorn
· Lágt sjónarhorn vs. hátt sjónarhorn
· Besta hæðin til þess að taka myndir af fólki. Af hverju?
· Hallandi sjónarhorn (Dutch tilt).
· Brennivídd – hvaða áhrif hefur mismunandi brennivídd?
Lífið er línudans
· 180° reglan og “línan” og allur línudansinn.
· Hvernig getum við komist yfir línuna (brýr og hjarir)?
Film Directing Fundamentals
Grunnreglurnar
· 30° reglan
· 180° reglan (og “línan”)
· Skjástefna (screen direction)
· Hvenær má brjóta reglurnar?
Önnur grundvallaratriði
· Meðferð tíma (þjappa, teygja)
· Mikilvægar myndir (hlutir, staðir, fólk) kynntar til sögunnar áður en til kasta kemur
· Aðferðir og mikilvægi þessa
Uppbygging sögunnar
· Rauði þráðurinn (spine)
· Meginhvatir persóna
· Átök (conflict)
· Persónusköpun
· Gjörðir og taktar (actions and beats)
Uppbygging senunnar
· Blokkir
· Taktar
· Vendipunktur
Sviðsetning
· Hlutverk sviðsetningar
· Hvernig notum við sviðsetningu til þess að segja sögu
Myndavélin
· Hverju getum við stýrt
· Hvernig notum við myndavélina til þess að segja sögu
Nokkur önnur atriði
· Stíll
· Dekkun
· Hæð myndavélar
· Linsur/brennivídd
· Prósa-storyboard
Loks eigið þið að geta fengið í hendurnar handrit (eina senu) og sett upp skot og raðað niður á skot, eins og gert er bæði með Notorious og A Piece of Apple Pie. Í slíku verkefni mynduð þið þurfa að sýna framvindu í senunni og að byggja upp spennu, bæði með sviðsetningu og myndatöku.
Kvikmyndasagan
Hverjar voru forsendur kvikmynda?
En kvikmynda með hljóði?
En litmynda?
Hverjir voru forverar kvikmyndanna?
Nokkrir upphafsmenn kvikmyndanna (Lumiére-bræður, Méliès, Edison, D.W. Griffith.
Af hverju Hollywood?
Hvernig stóð á heimsyfirráðum Hollywood?
Hverjar voru tæknilegar og efnahagslegar forsendur hljóðmynda?
Hvaða hindranir hafði hljóðið í för með sér?
(Af hverju leið stúdíó-tímabilið undir lok?)
Handrit
Grunnþættir (Beat-->Story Event-->Scene-->Sequence-->Act-->Story) og dæmigerð uppbygging.
Archplot, Miniplot og Antiplot (og dæmi).
Annað skiptir minna máli.
Klipping
Nokkrar grundvallarhugmyndir um klippingu.
Hugmyndir Murch um klippingu.
Leikstjórar/stefnur
Þið eigið að kunna deili á leikstjórunum eða stefnunum sem þið fjölluðuð um í fyrirlestrunum ykkar.
Lesefni
Glærur.
Film Directing Fundamentals, kaflar 1-9, 13-15 og 17.
5 C’s of Cinematography, fyrstu tvö C-in, lesin mjög lauslega.
In the Blink of an Eye, mjög lauslega lesin.
(How to Read a Film, kafli 4. Þið eigið að skilja nokkurn veginn a.m.k. eitt sjónarhornið.)
Þið eigið líka að kunna skil á myndunum sem við horfðum á í vetur:
8½
American Movie
Astrópía
Brúðguminn
Devil’s Backbone
Funny Games
General, The
Happy End
Hearts of Darkness
Hold Up Down
Kabinett des Dr. Caligari, Das
Killer of Sheep
Man Bites Dog
Mannaveiðar
Notorious
Oldboy
A Personal Journey With Martin Scorsese through American Movies
Rashomon
Règle du Jeu, La
Sjunde inseglet, Det
Some Like It Hot
Stóra planið
Suspiria
Taste of Tea
Veðramót
fimmtudagur, 10. apríl 2008
Stuttmyndadagar í Reykjavík
Stuttmyndadagar í Reykjavík hefjast von bráðar og mig langar til að hvetja alla til þess að senda myndirnar sínar inn.Munið eftir mottóinu hans Ólafs: Það er allt í lagi að senda frá sér mynd þótt hún sé ekki fullkomin, svo lengi sem þetta er nokkurn veginn mynd - þú ert ekki myndin þín og þarft ekki að skammast þín þótt þú gerir mistök. Það skiptir ekki öllu hvort myndirnar eigi séns á að vinna, það er bara gaman að taka þátt, og ef myndin kemst á úrslitakvöldið þá er það frábært (og auðvitað enn þá betra ef hún vinnur til verðlauna).
Skilafrestur er 11. maí, og það má skila annað hvort á Quicktime eða DV (þ.a. þið getið annað hvort flutt myndirnar aftur út á spólu eða kóðað þær sem Quicktime mynd, hvorugt er mikið mál).
Úrslitakvöldið er 29. maí, þ.a. þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af því að komast ekki vegna prófa.
Sýnið lit - takið þátt!
þriðjudagur, 8. apríl 2008
ATH: DAGSKRÁRBREYTING
Ég biðst afsökunar á þessum skamma fyrirvara, en Ólafur vissi ekki af þessu fyrir víst fyrr en í dag. Ég vona að sem allra flestir sjái sér fært að mæta, og minni ykkur á að vera tilbúnir með 2-3 spurningar handa honum.
Af þessum sökum mun tíminn í fyrramálið falla niður.
Þeir sem þetta sjá mega endilega láta boð ganga til félaga sinna.
þriðjudagur, 1. apríl 2008
Vinnuáætlun stuttmyndar - ÚT FRÁ ÞESSU MÁ EKKI VÍKJA
1) Eyjólfur og félagar ljúka tökum nú um helgina.
2) Á mánudag tekur Ólympíuliðið við vélinni og hafa vikuna til þess að ljúka sínum tökum.
Klippitölvan:
1) Emil og félagar ljúka klippingu nú í vikunni.
2) Á föstudag fá Bjarki og félagar tölvuna og klippa sína mynd.
3) Á mánudag taka Eyjólfur og félagar við tölvunni og hafa vikuna til þess að klippa sína mynd.
4) Á föstudag fær Ólympíuliðið tölvuna og ljúka við klippinguna um helgina.
Við höfum ekki mikinn tíma og það má ekkert fara úrskeiðis ef við ætlum að klára allt áður en ég þarf að skila námseinkunnum. Af þeim sökum verða tafir ekki liðnar! Ef þetta kallar á 1-2 svefnlausar nætur eða nokkur skróp þá verður bara að hafa það.
þriðjudagur, 25. mars 2008
Góð helgi fyrir leikið innlent efni
Það er gaman að minnast á það að tveir menn sem ég man eftir að voru á þessu námskeiði hafa verið virkir í gerð sjónvarpsefnisins sem sýnt hefur verið í vetur - þeir Sigurjón Kjartansson, sem er einn af mönnunum á bak við Pressu, og Jón Gnarr, leikari og meðhöfundur að Næturvaktinni.
Pressa
Þar sem ég tími ekki að borga þær fáránlegu upphæðir sem áskrift að Stöð2 kostar, þá missti ég af þessum þegar þeir voru frumsýndir í haust. Ég náði megninu af þeim nú um helgina og leist bara ansi vel á. Þeir ná að skapa ágæta stemningu og sæmilega spennu. Aðalpersónan, Lára, var ansi sympatísk, og taktískt að láta aðalpersónuna vera einhvern sem kemur nýr inn í þetta framandi umhverfi og kynnist því samtímis okkur áhorfendunum.Þættirnir héldu athygli manns og gerðu vel í að halda yfirleitt alltaf nokkrum söguþráðum á lofti í einu, nema í lokin þegar aðalsöguþráðurinn er auðvitað aðalmálið. Þessi færsla á að vera jákvæðu nótunum, þannig að ég ætla ekkert að tala um smáatriðin sem fóru örugglega ekki í taugarnar á neinum nema mér, og láta nægja eina smá-gagnrýni. Seinasti þátturinn var frekar sléttur og felldur - mér fannst hann eiginlega allur fara í að binda einhverja hnúta og það var ekki beint mikil spenna í gangi eftir að Láru var bjargað strax í upphafi þáttar. "Cliffhangerinn" í lok 5. þáttar var reyndar gott "touch", en um leið kom hann upp um vonda kallinn u.þ.b. hálfum þætti of snemma - það getur varla nokkur hafa efast um hver morðinginn var í lok 5. þáttar.
Allt í allt ansi fínir þættir. Svo sem engin gargandi snilld, en vandaðir og spennandi þættir sem sóma sér vel á skjánum...
Mannaveiðar
Það er auðvitað ekki hægt að dæma þessa þáttaröð eftir einn þátt, en það má svo sem tala um þennan eina þátt. Mér leist bara mjög vel á þennan þátt og bíð spenntur eftir þeim næsta.Að vissu leyti er þetta auðvitað bara sama gamla. Manni sýnist í fljótu bragði þættirnir ætla að sverja sig í ætt við sænska félagslega raunsæið (mig minnir að þeir kalli það það), eins og Allir litir hafsins eru kaldir gerði (og e.t.v. Pressa líka). Lúkkið rennir enn frekari stoðum undir það - það er svolítið skrýtið að það hafi myndast þessi hefð að þegar menn ætla að vera rosalega raunsæir þá sýni þeir allt í gegnum filter sem dregur úr litunum og gerir þá kaldari.
Upphafssenan (morðið) fannst mér bara nokkuð vel heppnuð. Þá fannst mér dýnamíkin milli lögreglumannanna tveggja (Hinriks og Gunnars) nokkuð skemmtileg, þó hún sé kannski ekki sú allra frumlegasta. Hún minnti mig svolítið á Turner & Hooch (man einhver eftir þeirri þvælu), með Gísla Örn í hlutverki Tom Hanks og Ólaf Darra í hlutverki hundsins... Og svo leiðir þessa dýnamík auðvitað líka til línu þáttanna hingað til: "Ég verð alltaf svangur þegar ég sé Borgarnes."
Ef það var eitthvað sem fór nett í taugarnar á mér í þessum fyrsta þætti þá var það hvað þeim lá mikið á að veita persónunum dýpt og persónueinkenni. Það lá við að það væri hálf-þvingað hvað þeir ætluðu að troða mikilli kynningu á persónum saman við upphafið á fléttunni. Hefði ekki mátt dreifa þessu yfir nokkra þætti. Það liggur við að allir sem hafi verið kynntir til sögunnar hafi einhver áberandi einkenni, og smáatriðunum er hlaðið á aðalpersónurnar. Einhvern vegin finnst mér minna "fínt" að skapa persónum með þessum hætti. Strax eftir fyrsta þáttinn vitum við að yfirmaður þeirra kumpána er að ganga í gegnum erfið sambandsslit; félagi þeirra (sem hefur nánast ekkert gert) tekur Dale Carnegie námskeið fram yfir morðmál; konan í tæknideildinni er svo forfallinn reykingamaður að hún fær að reykja inn á lögreglustöð: Gunnar er síétandi sóði, býr hjá þýskri mömmu sinni, er að gera upp gamalt mótorhjól og á (næstum örugglega) eftir að ná saman við dóttur bóndans sem er fyrst grunaður um morðið (sem nota bene var gift óvirkum alka, opnaði sjoppu, fór á hausinn...); og Hinrik er hræðilega tilfinningalega bældur, býr einn og er alltaf með slökkt inni hjá sér, er algjört "neat-freak", og var líkast til misnotaður sem barn. Í þeim efnum ætla ég líka að vona að þessi "flashbökk" hans Hinriks taki á sig einhvern viðsnúning, því ef þau fjalla um það að hann hafi orðið fyrir barðinu á barnaníðingi í æsku (og þess vegna sé hann svona bældur) þá hefði fyrsta "flashbakkið" verið nóg til þess að maður fattaði það. Mjög kúl effekt í "flashbökkunum" samt...
Ég vona að þessi "hleðsla" á persónum verði tónuð niður í næstu þáttum og plottið og dýnamíkin milli persóna fái að njóta sín (þó svo að kynning á persónum sé auðvitað lykilatriði til þess að svo megi verða). Ef sú verður raunin þá líst mér ansi hreint ágætlega á þessa þætti. Næstu þrjú sunnudagskvöld gætu orðið helvíti spennandi.
Og loks, sem dæmi um ágæti þessa fyrsta þáttar, þá þótti mér leiðinlegt að hann skyldi enda, og ef ég hefði haft næsta þátt hefði ég hiklaust haldið áfram að horfa.
Morgundagurinn
Mælist til þess að menn mæti með klippitölvuna, og það á réttum tíma (reyndar helst nokkrum mínútum fyrr). Ef þeir gera það, þá getum við kíkt á stuttmyndir. Ef ekki, þá þarf ég að töfra eitthvað fram úr erminni.
mánudagur, 24. mars 2008
Mannaveiðar: Skylduáhorf í kvöld
Fyrir þá sem alls ekki geta horft í kvöld, þá er þátturinn endursýndur á morgun kl. 23.40.
Síðan er aldrei að vita nema Björn geti talið leikstjórann á að koma í tíma til okkar. Hvað segir Björn um það?
föstudagur, 21. mars 2008
Fyrirlestrar og staða á stuttmyndunum
Eins væri ágætt að þeir sem eiga eftir að velja efni í fyrirlestrunum tilkynni val sitt sem fyrst. Þá gæti ég hugsanlega lánað þeim myndir strax á miðvikudaginn eftir páska.
