14. In the Attic
Myndin sjálf var bráðskemmtileg. Þetta er tékknesk stop-motion mynd sem sameinar brúður, leirkarla og smá live action. Aðalpersónur myndarinnar eru gömul leikföng uppi á háalofti. Dúkkan Buttercup, leirkarlinn Schubert, bangsinn Teddy (minnir mig) og strengjabrúðan Handsome búa saman í gamalli ferðatösku/dúkkuhúsi. Líf þeirra er eins og í ævintýri þangað til útsendarar Gullhauss, einræðisherra vonda landsins, ræna Buttercup. Þetta er svolítið eins og stop-motion útgáfa af Toy Story með fullt af tilvísunum í kommúnisma og einræðisherra austantjaldsríkjanna.
15. The Tillman Story
Ég mæli hiklaust með þessari.
16. Winter's Bone
17. Kimjongilia
Ég er á báðum áttum með þessa mynd. Efni myndarinnar er ansi magnað, en efnistökin voru soldið skrýtin. Myndin fjallar um þjáningar íbúa Norður-Kóreu og er að miklu leyti byggð upp á viðtölum við fólk sem hefur flúið landið, en inn á milli birtast einhverjar óttalega artí senur með dansara, sem mér finnst einfaldlega ekki passa við efni myndarinnar. Einnig birtast mörg norður-kóresk áróðursmyndbönd, sem virðast fyrst og fremst ætluð til þess að gera grín að Kim Jong-Il, og eiga ekkert sérstaklega erindi í akkúrat þessa mynd.Sögur viðmælendanna eru ótrúlega átakanlegar og sorglegar. Einn þeirra var handtekinn og færður í fangabúðir 9 ára gamall vegna þess að afi hans var grunaður um glæp, en í Norður-Kóreu tíðkast það að "hreinsa" þrjár kynslóðir í einu, þ.e. ekki bara afbrotamanninn sjálfan heldur líka konu, börn og barnabörn (eða foreldra, konu og börn). Annar fæddist í fangabúðum og þekkti ekkert annað, en eftir að hann eignaðist vin í búðunum sem sagði honum frá lífinu utan þeirra (honum fannst skemmtilegastar sögurnar af því hvað hann borðaði), þá gat hann ekki hugsað sér að vera lengur í búðunum og lagði líf sitt í hættu til þess að flýja. Einnig var talað við konu sem tókst að flýja til Kína, en þá lenti hún í jafnvel enn verri aðstöðu því fólk misnotaði sér veika stöðu hennar og hneppti hana í kynlífsþrælkun í fimm ár (en í Kína eru flóttamenn frá Norður-Kóreu sendir aftur heim ef þeir finnast).
Eftir myndina var mjög áhugavert Q&A með leikstjóranum. Ástandið í Norður-Kóreu er henni mikið hjartans mál, og m.a. kynnti hún fyrir salnum fulltrúa LINK (Liberty in North Korea) sem virtust mjög góð og áhugaverð samtök sem ég mæli alveg með að þið kynnið ykkur..Ástandið í Norður-Kóreu er hræðilegt. Í stórum hluta landsins hefur ríkt hungursneyð nánast samfleytt frá 1994, svo ekki sé minnst á kúgunina og mannréttindabrotin sem eiga sér stað á hverjum degi. Þrátt fyrir nokkra galla í stíl myndarinnar mæli ég hiklaust með henni. Þetta er málefni sem allir ættu að kynna sér.









