sunnudagur, 20. mars 2011

Færslupöntun: Leggið dóm ykkar á fagið!

Mig langar til þess að panta hjá ykkur eina lokafærslu. Mér þætti gaman og það væri mér gagnlegt ef þið skrifuðuð dálitla umsögn um námskeiðið. Þið gætuð komið inn á eitthvað af eftirfarandi punktum:
  • hvað tókst vel og hvað mætti betur fara
  • hvaða hluti námskeiðsins var skemmtilegastur
  • hvaða hluta lærðuð þið mest af eða nýttist ykkur best
  • hvaða hluta þarf að breyta eða henda alveg út
  • hvers söknuðuð þið - hverju þarf að bæta við
  • o.s.frv.
Það væri líka gaman að heyra hvaða væntingar þið höfðuð til námskeiðsins í upphafi, og að hvaða leyti það stóðst (eða stóðst ekki) þær væntingar.
Eðlilega þætti mér skemmtilegast að fá uppbyggilega gagnrýni, en ef ykkur liggur eitthvað á hjarta skuliði endilega láta gossa.

Ég er með nokkrar spurningar í viðbót sem væri gott að fá svar við:
  • Mér finnst mikilvægt að það séu gerðar a.m.k. 3 stuttmyndir yfir árið. Ég vil ekki fórna maraþonmyndinni, heimildamyndinni eða lokaverkefninu, og raunar myndi ég vilja bæta við einni mynd í viðbót, örmynd, auglýsingu eða tónlistarmyndbandi. Hvernig er hægt að koma þessu öllu fyrir? Væri betra að setja hverjum hópi fyrir frumsýningardag, frekar en að sýna allar myndirnar í einu?
  • Er eitthvað sem mætti bæta í stuttmyndaferlinu? Væri betra að myndavélin og tölvan færu alltaf í gegnum mig frekar en beint milli hópa? Á ég að vera harðari á því að koma græjunum til hópanna? Á ég að vera harðari á skiladögum
  • Ætti að raða efninu upp öðruvísi?
  • Hvernig má hvetja til meiri og metnaðarfyllri bloggs? Ætti ég að gefa stig fyrir komment til þess að hvetja til meiri umræðu?
Til þess að hvetja ykkur enn frekar til þess að skrifa þessa færslu, þá fá allir sem skrifa almennilega færslu um þetta efni 10 stig!

2 ummæli:

Urður sagði...

Eigum við samt að fara á myndina og blogga um hana ef við komumst ekki á sunnudaginn?

buy gw2 gold sagði...

I've read a post to teach us how to make toys in the game, and you can have a look too. Would you like to make toys with me ?