miðvikudagur, 26. janúar 2011

Heimavinna: Bloggfærsla um grein

Fyrir næstkomandi mánudag eiga allir að lesa eina af greinunum sem linkað er í hér fyrir neðan og skrifa færslu upp á a.m.k. 400 orð um greinina. Af færslunni á að vera augljóst að viðkomandi hefur lesið greinina vel og vandlega. Færslan á samt ekki eingöngu að samanstanda af endursögn á greininni. Æskilegt er að þið deilið ykkar skoðun á greininni og þeim vangaveltum sem hún vekur hjá ykkur.

Kristin Thompson: Has 3D already failed? og Has 3D already failed? the sequel (part one) (part two)
Vangaveltur Kristin Thompson um þrívíddartæknina. Þetta er vissulega ansi stór pakki (allar þrjár greinarnar eru frekar langar) en það er fullt af áhugaverðum pælingum í þessu og þið verðið margs vísari eftir lesturinn. Svo er þetta um hluti sem eru að gerast núna, við horfum upp á það að sífellt fleiri myndir eru í þrívídd (meira að segja Sveppi), og bráðum kemur fyrsta alvöru íslenska þrívíddarmyndin (Þór).

Kristin Thompson og David Bordwell: The Best films of 1920
Thompson og Bordwell hafa undanfarin ár, í stað þess að fjalla um bestu myndir ársins sem leið, fjallað um bestu myndir ársins fyrir 90 árum síðan. Þannig að í stað þess að skrifa um bestu myndir ársins 2010 skrifa þau um árið 1920. Þetta er að mörgu leyti áhugaverð lesning...

David Bordwell: "I don't hate anybody, not even my interrogators"
Tiltölulega stutt grein um Jafar Panahi, íranska leikstjórann sem var handtekinn á dögunum og dæmdur í 6 ára fangelsi (og 20 ára kvikmyndagerðarbann) fyrir að gera bíómyndir.

David Bordwell: Errol Morris, boy detective
Errol Morris er einn mikilvægasti og áhugaverðasti heimildamyndargerðarmaður síðustu 30 ára. Þetta er bæði grein um hann og viðtal við hann.

David Bordwell: Unsteadicam chronicles, A Glance at blows og Bond vs. Chan: Jackie shows how it's done
Þrjár áhugaverðar greinar um sama efnið: myndatöku og klippingu í hasarmyndum. Ef þið hafið minnsta áhuga á hasarmyndum held ég að þið mynduð hafa gagn og gaman af þessum greinum. Seinasta greinin fjallar m.a. um Police Story, mynd með/eftir Jackie Chan sem við munum horfa á í næstu viku (minnir mig).

David Bordwell: No coincidence, no story
Um hlutverk tilviljana í sögu-uppbyggingu kvikmynda. Nokkuð áhugaverð.

Kristin Thompson og David Bordwell: Inception; or Dream a Little Dream within a Dream with Me og Revisiting INCEPTION
Áhugaverðar og öðruvísi greinar um Inception. Bordwell og Thompson reyna m.a. að útskýra (eða geta sér til um) til hvers þessi mikla söguflækja í myndinni er. Grunnhugmyndin: Inception er ekki flókin af því að hún gerist í draumum (í draumum í draumum) heldur gerist hún í draumum af því að hún er flókin.

David Bordwell: Scorsese, 'pressionist
Um áhrif mismunandi kvikmyndastefna á Martin Scorsese, einna helst expressjónisma og impressjónisma. Áhugavert sambland kvikmyndasögu og greiningar á nýlegri myndum.

Engin ummæli: