þriðjudagur, 14. apríl 2009

Umsagnir um lokaverkefni

Engilbert Svarfdal
Anna, Birta, Íris, Kristján, Tryggvi.
Skemmtilegt mockumentary.
Ágætlega gerð.
Tónlistin vel útfærð.
Notkun ljósmynda mjög fín.
Viðtölin mörg hver mjög fín, og skemmtilega klippt milli viðtala.
Margar senur oflýstar. Sérstaklega var byrjunin alveg "sprungin".
Tímasetningin (comic timing) var almennt nokkuð góð.
Var á mörkunum að ná upp í 9,5, en klúðrið á frumsýningardag útilokar það eiginlega.
9,0

Brot og brestir
Árni, Gísli, Ragnar og Steinar.
Margt ágætt í þessari.
Mér finnst hún samt meiri "æfing" en heildstæð mynd.
Tónlistin var soldið "overkill", en átti vafalítið að vera það (s.s. íronísk notkun tónlistar).
Klippingin var fín og útfærslan á þessu ýkta melódrama var nokkuð skemmtileg.
Flashbackið og symbólismi skálarinnar voru ágætlega útfærð.
8,0

Op. no. 1
Andri, Björn Ívar, Haraldur, Helga, Héðinn.
Ég man ekki hvað þessi hét...
Eins og með "Brot og bresti" þá finnst mér þessi vera meira í átt að æfingu en heildstæðri mynd.
Það er margt skemmtilegt í myndinni - sumt er hálfgert "homage" til David Lynch og Idi i smotri, rússnesku stríðsmyndarinnar sem við horfðum á.
Sumar senurnar voru ROSALEGA oflýstar. Ég vona að það hafi verið stílræn ákvörðun, en þetta var samt soldið klúðurslegt.
Þessi hópur vann sér heldur ekki inn vinsældir með því að fara langt fram yfir töku- og klippiáætlun.
7,5
Umsókn #68
Anton, Magnús, Pétur og Tómas.
Margt ágætt við þessa. Hún er fyndin, nokkuð skemmtileg og hefur nokkur góð móment.
Mér finnst þetta form ekki beint hentugt fyrir svona lokaverkefni, ég hefði viljað heildstæðari sögu.
Skilað allt of seint.
8,0

Kleifarvatn
Gunnar, Ísak, Jóhann og Jóhanna.
Flottar tæknibrellur.
Ágæt hugmynd og margt vel gert.
Mér fannst aðeins vanta upp á útfærsluna. Ég hefði viljað sjá unnið meira með þessa tilvistarkreppu að vera ekki til. Mér fannst eiginlega vanta einhverja eftirminnilega senu um það (símtalið við 118 komst einna næst).
Mér finnst soldið ofnotað "dissolve through black" í myndinni.
Annars var ég ansi ánægður með hana.
Skilað seint samt...
9,0

7 ummæli:

Gísli Guðlaugsson sagði...

Hvað gilti lokamyndin mikið í samanburði við heimildamynd og maraþonmynd?

Siggi Palli sagði...

Lokaverkefni er 30%.
Heimildamynd/örmynd er 20%.
Maraþonmynd er 10%.

Nafnlaus sagði...

Mér finnst þetta klúður á frumsýningardag vera meira svona ''honest mistake.'' Auk þess sem þetta hefði aldrei komið fyrir hefðum við fengið tölvuna á skikkanlegum tíma.

Kristján

Siggi Palli sagði...

Enda er ég ekki beinlínis að lækka ykkur fyrir þetta. Ég var efins og hefði kannski eytt miklum tíma í að ákveða 9,0 eða 9,5, og alveg jafn líklegt að ég hefði endað í 9,0, en þetta klúður hjálpaði mér soldið við þá ákvörðun.
Það er ábyrgðarhlutur að vera með tölvuna daginn fyrir frumsýningu, vitandi að fleiri hópar en þið reiða sig á að tölvan sé á staðnum...

Nafnlaus sagði...

Jájá, ég er alveg hæst ánægður með einkunnina. En af þremur hópum sem skiluðu mynd var aðeins einn hópur utan okkar sem klippti myndina í tölvunni.
Sá hópur kláraði að klippa 9 klst. fyrir frumsýningu.

En það skiptir engu máli núna.

Hvernig nálgast maður þessa bók sem er til prófs.

Kristján

Siggi Palli sagði...

Film Directing Fundamentals má nálgast í Eymundsson á Austurstræti (eða var það lengi vel).
Ljósritað hefti má nálgast á skrifstofu skólans.
Annað efni er allt að finna á myschool, undir Kvikmyndagerð og Annað efni.

Nafnlaus sagði...

Hvenær má svo búast við dómum fyrir seinni 2 myndirnar?

Gunnar