sunnudagur, 10. febrúar 2008

Dagskrá næstu viku

Mánudagur 8.10-9.35
Komumst að niðurstöðu í bloggfærslumálinu.
Horfum á áhugaverðan þátt um CGI-tæknibrellur (reyndar svolítið gamall og þar af leiðandi úreltur).
Lítum e.t.v. á fleiri sýnidæmi úr Final Cut.

Mánudagur 16.10-18.00
Óvissubíó.

Miðvikudagur: Frí

Hvar eru handritin? Ég er enn sem komið er bara búinn að fá 1 handrit (frá Ólympíuliðinu). Hvar eru öll hin?

1 ummæli:

Jón sagði...

Við hefðum átt að vera í aðeins meira rusli yfir þessum hálfa dag sem við fórum á mis við...