þriðjudagur, 13. nóvember 2007

Tvöfaldur tími á morgun

Gleymdi að minnast á það í gær, en það verður tvöfaldur tími á morgun (miðvikudag). Sem sagt mæting klukkan 8.10. Þetta er svo við náum að hafa fyrirlestur og Andalúsíuhundinn (og smá blaður frá mér...).

Tveir punktar í viðbót:
  • Sumir þurfa virkilega að taka sig á í blogginu. You know who you are...
  • Héðan í frá verða allar bíósýningar óvissusýningar. Ég segi ekki múkk fyrir sýningu - set bara myndina í gang, og þeir sem hafa ekki séð þær geta nálgast myndirnar með ferskum huga. Ég bar þetta undir hópinn sem horfði á Some Like It Hot með mér (alla 7) og þeim leist ágætlega á þetta.

2 ummæli:

Björn Brynjúlfur sagði...

Sælir, ég var að pæla hvort þú hafir í hyggju að birta fyrirlestra-reviews á sama hátt og þú birtir blogg- og stuttmynda-reviews?

Það væri gaman að sjá það, líka til að rifja upp hvaða leikstjóra var fjallað um.

Siggi Palli sagði...

Ég mun birta umsagnir um leið og ég er tilbúinn með þær, vonandi á allra næstu dögum.